12.1.2012
Skaupið aftur vinsælast
Endursýnt Áramótaskaup Sjónvarpsins var aftur í fyrsta sæti yfir vinsælustu dagskrárliði í sjónvarpi í síðustu viku. Endursýningin á laugardagskvöldi gaf af sér 40% meðaláhorf og um 48% uppsafnað áhorf. Aðrir vinsælir dagskrárliðir voru Landinn með 32% áhorf, Íþróttamaður ársins með 31% og Fréttir með 29% meðaláhorf.
5.1.2012
Áramótaskaupið með 80% áhorf!
Nýjar mælingar á áhorfi og hlustun eru nú komnar á vefinn. RÚV endaði árið með látum því mesta sjónvarpsáhorf ársins var í þessari síðustu viku. Skaupið var að sjálfsögðu vinsælast og fékk flott áhorf eða um 80%. Aðrir dagskrárliðir mældust vel, Páll Óskar og Sinfó, Áramótamót Hljómskálans og fréttaannálar ársins skipa efstu sæti topplistans. Áhorfið á RÚV í þessari viku var meira en í sömu viku á síðasta ári! Markaðshlutdeildin er líka í hæstu hæðum eða 57%.
Rás 1 og Rás 2 enda líka árið á góðum nótum. Messan á Rás 1 á gamlársdag fær mikla hlustun, en þessa „óvirku“ daga milli jóla og nýárs fékk Rás 2 mun meiri hlustun en Bylgjan yfir daginn. Markaðshlutdeild Rásar 2 mælist með mesta móti þessa vikuna eða 39% og hefur aðeins einu sinni áður síðustu 12 mánuði farið hærra. Hlustun í mínútum minnkar aftur á móti milli vikna og þá sérstaklega á Rás 2 og Bylgjuna. Líklega hefur sjónvarpið tekið eitthvað af þessum mínútum! Einnig var útvarpshlustun á nýársdag með minnsta móti og dregur meðaltalið niður.
29.12.2011
Magnaður Mugison
Bein útsending frá tónleikum Mugison fimmtudaginn 22. desember var vinsælasta sjónvarpsefnið í síðustu viku. Um helmingur landsmanna horfði á útsendinguna og fjölmargir hlustuðu á beina útsendingu Rásar 2 frá tónleikunum. Annað vinsælt efni í síðustu viku voru framhaldsþættirnir Millennium sem sýndir eru á þriðjudagskvöldum og heimildamyndin Andlit norðursins sem sýnd var á jóladag. Nánari upplýsingar um áhorf og hlustun er hægt að fá með því að skrá sig inn á vefinn hér til vinstri á síðunni.
15.12.2011
Dans dans dans
Vinsælasti dagskrárliðurinn í síðustu viku var útsending frá úrslitakvöldi Dans dans dans. Rúmlega helmingur landsmanna fylgdist með útsendingunni. Human Planet, Criminal Minds og Útsvar voru næstir í röðinni á topplista sjónvarps. Hægt er að nálgast áhorfstölur með því að fara inn á www.capacent.is eða skrá sig inn á þennan vef hér til hægri á síðunni.
24.11.2011
Nýjar kannanir komnar á vefinn
Greining á nýjum mælingum fyrir útvarp og sjónvarp eru komnar á vefinn undir flokknum "Kannanir" Til að nálgast þessar upplýsingar þarf viðkomandi að vera skráður notandi á vefnum.
Í síðustu viku voru Útsvarið og Dans dans dans vinsælustu dagskrárliðirnir í sjónvarpi. Í þriðja sæti þar skammt á eftir var hinn undraverðir "Human Planet" heimildaþáttur sem sýndur er á RÚV á mánudagskvöldum.
28.10.2011
Coldplay í beinni á Rás 2
Hljómsveitin Coldplay er ein allra stærsta og vinsælasta hljómsveit samtímans og sendi á dögunum frá sér sína fimmtu breiðskífu, Mylo Xyloto, sem ekki er ólíklegt að fari alla leið í fyrsta sæti vinsældalista víðsvegar um heiminn. Platan er einskonar „konsept-plata“ og segir frá elskendunum Mylo og Xyloto og raunum þeirra í stórborgarlífinu.
Þegar tónlistarverðlaun breska tónlistarblaðsins Q voru afhent núna í vikunni hlaut Coldplay útnefninguna; „Best act in the world today“ eða „besta hljómsveit í heimi“.
Í samstarfi við WDR í þýskalandi og EBU býður Rás 2 upp á beina útsendingu frá úitgáfutónleikum Coldplay frá E-Werk í Köln næsta miðvikudagskvöld kl. 20.00
Coldplay mun spila í c.a. 75 mínútur og á efnisskránni eru lög af nýju plötunni í bland við eldri slagara.