A L M E N N G J A L D S K R Á
Ríkisútvarpsins ohf.
fyrir auglýsingabirtingar,
kostun og aðra skylda tekjustofna.
1. gr.
Gjaldskrá þessi er sett á grundvelli 4. mgr. 11. gr. laga um Ríkisútvarpið ohf. nr. 6/2007. Auglýsingadeild RÚV ohf. setur verðskrá þar sem fram koma viðskiptakjör félagsins hverju sinni á grundvelli gjaldskrár þessarar.
Gjaldskrá þessi er ófrávíkjanleg.
2. gr.
Við ákvörðun viðskiptakjara í verðskrá skal RÚV ohf. gæta jafnræðis gagnvart viðskiptamönnum félagsins.
Viðskiptakjör á auglýsingum og kostunum fyrir auglýsendur skulu ávallt vera gagnsæ.
3. gr.
RÚV ohf. skal birta á heimasíðu félagsins hverju sinni gildandi verðskrá fyrir hljóðvarp og sjónvarp vegna auglýsinga, kostunar, og annarra skyldra tekjustofna, þ.m.t. möguleg afsláttarkjör hverju sinni.
4. gr.
Við ákvörðun viðskiptakjara samkvæmt gildandi verðskrá hverju sinni skal RÚV ohf. taka mið af birtingartíma, þ.m.t. líklegu áhorfi eða hlustun á tímamarki birtingar, lengd auglýsingar, tegund auglýsingar, og öðrum þeim atriðum sem sérstaka þýðingu geta haft.
5. gr.
Við veitingu afsláttarkjara eða annarra kjara til viðskiptavina samkvæmt gildandi verðskrá skal meðal annars tryggja:
a) að magnafsláttur, svo sem hærri afsláttur (afslættir) vegna mikilla viðskipta, og kaupaukar í einstökum samningum, byggi á viðskiptalegum forsendum, og standi öllum til boða sem eins er ástatt um,
b) að veiting afsláttarkjara eða annarra sambærilegra kjara sé ekki bundin óeðlilegum skilyrðum sem geta talist til þess fallin að hafa útilokunaráhrif gagnvart samkeppnisaðilum RÚV ohf. á sjónvarps- og hljóðvarpsmarkaði,
c) að gætt sé viðeigandi jafnræðis.
6. gr.
RÚV ohf. er heimilt þegar sérstaklega stendur á, svo sem vegna breytinga á auglýstri dagskrá eða ófyrirséðrar eftirspurnar á tilteknum birtingartíma, sem raska almennum verðforsendum, að víkja frá gildandi verðskrá.
Þegar svo stendur á skal RÚV ohf. leitast við að tryggja að slík kjör séu aðgengileg öllum viðskiptamönnum félagsins. Við ákvörðun einstakra viðskiptakjara samkvæmt 1. mgr. skal gætt þeirra sjónarmiða sem fram koma í 5. gr. eftir því sem við á.
7. gr.
Við verðlagningu kostunar skal RÚV ohf. taka mið af birtingartíma, líklegu áhorfi og öðrum sem þeim atriðum sem sérstaka þýðingu geta haft. RÚV ohf. skal á heimasíðu félagsins tiltaka þau sjónarmið sem ráða verðlagningu kostunar, sbr. 3. gr.
Við verðlagningu kostunar samkvæmt 1. mgr. skal gætt þeirra sjónarmiða sem fram koma í 5. gr. eftir því sem við á.
Aðgreina skal auglýsinga- og kostunarþátt samninga með skýrum hætti.
8. gr.
Stjórn RÚV ohf. hefur eftirlit með því að gildandi gjaldskrá sé framfylgt, þ.m.t. að verðskrá hverju sinni sé í samræmi við hana.
9. gr.
Gjaldskrá þessi skal sæta endurskoðun eftir því sem ástæða er til, þó eigi sjaldnar en einu sinni á ári.
10. gr.
Gjaldskrá þessi var samþykkt af stjórn RÚV ohf. þann 13. október 2009 og tekur þegar gildi.