NÝLEGT, NÝTT og VÆNTANLEGT:
![]() |
BORGEN - Danskur myndaflokkur um valdataflið í dönskum stjórnmálum. Helstu persónur eru Birgitte Nyborg, fyrsta konan á forsætisráðherrastól, spunakarl hennar, Kasper Juul, og Katrine Fønsmark sem er metnaðarfull sjónvarpsfréttakona, en örlög þeirra þriggja fléttast saman með ýmsum hætti. Meðal leikenda eru Sidse Babett Knudsen, Pilou Asbæk og Birgitte Hjort Sørensen. Sýndur á sunnudagskvöldum kl. 20.15. | ||
![]() |
KODENAVN HUNTER - Norsk spennuþáttaröð á þriðjudagskvöldum kl. 22.20 um baráttu lögreglunnar við glæpagengi. Meðal leikenda eru Mads Ousdal, Ane Dahl Torp, Jan Sælid, Alexandra Rapaport og Kristoffer Joner. | ||
![]() |
RÚV ROKKAR Í FEBRÚAR - Sýndar verða heimildamyndir og tónleikamyndir um Jimi Hendrix, Iron Maiden, Rolling Stones, Sigur Rós og U2 á miðvikudagskvöldum kl. 22.20 í febrúar. Rokkið byrjar á Hendrix 1. febrúar, en endar á U2 29. febrúar. | ||
![]() |
HVERT STEFNIR ÍSLAND - Umræðuþáttur um embætti forseta Íslands þriðjudaginn 7. febrúar kl. 20.10. Umsjónarmaður er Þórhallur Gunnarsson. | ||
![]() |
SÖNGVAKEPPNI SJÓNVARPSINS 2011 - Sem fyrr verður framlag Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva valið með hjálp áhorfenda RÚV. Söngvakeppni Sjónvarpsins verður með hefðbundnu sniði. Þættirnir verða fimm talsins, þrir undanúrslitaþættir, einn samantektarþáttur og úrslitaþáttur. Kynnir í ár er Brynja Þorgeirsdóttir. Úrslitaþáttur Söngvakeppni Sjónvarpsins er 11. febrúar. | ||
![]() |
TROPIC THUNDER - Leikarar sem vinna að gerð dýrrar stríðsmyndar neyðast til að verða eins og hermennirnir sem þeir eiga að vera að leika. Leikstjóri er Ben Stiller og hann leikur jafnframt aðalhlutverk ásamt Jack Black, Robert Downey Jr. og Steve Coogan. Bandarísk bíómynd frá 2008. Sýnd laugardaginn 11. febrúar kl. 22.00. | ||
![]() |
INSIDE THE HUMAN BODY - Frábær fræðslumyndaflokkur frá BBC um mannslíkamann, þróun hans og starfsemi. Þátturinn er á mánudagskvöldum kl. 20.15. | ||
![]() |
HEIMA - Tónleikamynd með Sigur Rós frá 2006. Þá fór hljómsveitin um landið og hélt óauglýsta og ókeypis tónleika fyrir gesti og gangandi á ýmsum stöðum, meðal annars í Djúpuvík á Ströndum, í Öxnadal, á Seyðisfirði, Kirkjubæjarklaustri, við Kárahnjúka og í Ásbyrgi. Sýnd miðvikudaginn 15. febrúar kl. 22.20. | ||
![]() |
POWERADE BIKARÚRSLIT KKÍ - RÚV verður með beina útsendingu frá úrslitaleikjum í bæði karla og kvennaflokki laugardaginn 18. febrúar. Útsending frá bikarúrslitum kvenna hefst kl. 13.10, en frá bikarúrslitum karla kl. 15.00. | ||
![]() |
SPILAÐU LAG FYRIR MIG - Afmælistónleikar Valgeirs Guðjónssonar í Hörpu á dögunum verða sýndir í tveimur hlutum. Fyrri hlutinn er á dagskrá RÚV laugardaginn 18. febrúar kl. 20.30 og seinni hlutinn viku síðar á sama tíma. Ásamt honum komu fram félagar hans úr Stuðmönnum og fleiri góðir gestir. | ||
![]() |
MR. BEAN´S HOLIDAY - Hr. Bean vinnur ferð til Cannes. Þar aðskilur hann óvart ungan dreng frá pabba sínum en rembist við að koma þeim saman aftur og í leiðinni kynnist hann Frakklandi, hjólreiðum og sannri ást. Leikstjóri er Steve Bendelack og meðal leikenda eru Rowan Atkinson, Willem Dafoe, Steve Pemberton og Emma de Caunes. Bresk gamanmynd frá 2007. Sýnd laugardaginn 18. febrúar. | ||
![]() |
GETTU BETUR - Spurningakeppni framhaldsskólanna hefst að nýju í sjónvarpinu föstudaginn 24. febrúar kl. 20.10. Spyrill er Edda Hermannsdóttir, dómarar og spurningahöfundar Þórhildur Ólafsdóttir og Örn Úlfar Sævarsson. | ||
![]() |
THE BREAKFAST CLUB - Fimm framhaldsskólanemar eru látnir sitja eftir og komast að því að þeir eiga mun fleira sameiginlegt en þeir héldu. Leikstjóri er John Hughes og meðal leikenda eru Emilio Estevez, Judd Nelson, Molly Ringwald, Ally Sheedy og Anthony Michael Hall. Bandarísk bíómynd frá 1985. Sýnd föstudaginn 24. febrúar kl. 21.15. | ||
![]() |
I NOW PRONOUNCE YOU CHUCK & LARRY - Tveir slökkviliðsmenn í Brooklyn þykjast vera samkynhneigt par til þess að fá hjónabætur. Leikstjóri er Dennis Dugan og meðal leikenda eru Adam Sandler, Kevin James, Jessica Biel, Dan Aykroyd, Ving Rhames og Steve Buscemi. Bandarísk bíómynd frá 2007. Sýnd laugardaginn 25. febrúar kl. 21.25. | ||
![]() |
LAST CHANGE TO SEE - Stephen Fry og dýrafræðingurinn Mark Carwardine fylgjast með tilraun til þess að flytja sjaldgæfustu nashyrninga heims úr dýragarði í Tékklandi til Kenýa í von um að þeir fjölgi sér þar. Sýnd mánudaginn 27. febrúar kl. 20.05. | ||
![]() |
HLJÓMSKÁLINN - Ný syrpa af þessum bráðskemmtilegu þáttum. Fyrsti þátturinn (3. mars) er helgaður Íslensku tónlistarverðlaununum sem afhent eru í Hörpu 29. febrúar. Umsjónarmaður er Sigtryggur Baldursson. Honum til halds og trausts eru Guðmundur Kristinn Jónsson og Bragi Valdimar Skúlason. Hljómskálinn er á dagskrá RÚV á laugardagskvöldum kl. 20.30. | ||
![]() |
FROZEN PLANET - Frábær náttúrulífsþáttaröð frá BBC með sjálfan Richard Attenborough fremstan í flokki. Strax að loknum hverjum þætti verður sýnd stutt mynd um gerð hvers þáttar (Making of Frozen Planet). Þættirnir verða á mánudagskvöldum kl. 20.05 í mars. | ||
![]() |
ANDRALAND - Andri Freyr Viðarsson flandrar um Reykjavík. Hann kemur víða við, skoðar áhugaverða staði, lendir í ýmsu klandri og spjallar við skemmtilegt fólk. Þættirnir verða á fimmtudagskvöldum kl. 20.40. Þetta er sjö þátta syrpa með Andra og er fyrsti þátturinn á dagskrá RÚV 8. mars. | ||
![]() |
OLD DOGS - Tveir vinir og viðskiptafélagar Þurfa óvænt að taka að sér sjö ára tvíbura um leið og þeir eru að ganga frá mikilvægum samningi. Leikstjóri er Walt Becker og meðal leikenda eru John Travolta, Robin Williams, Kelly Preston og Matt Dillon. Bandarísk gamanmynd frá 2009. Sýnd laugardaginn 10. mars kl. 21.05. | ||
![]() |
DETROIT 1-8-7 - Í þessari bandarísku spennuþáttaröð á morðdeild lögreglunnar í Detroit í höggi við harðsvíraða glæpamenn. Meðal leikenda eru Michael Imperioli, James McDaniel og Aisha Hinds. Þættirnir hefjast í júlí og koma í stað Criminal Minds kl. 22.20. | ||
![]() |
EM 2012 - Úrslitakeppni EM í fótbolta verður sýnd í beinni útsendingu RÚV næsta sumar! | ||
![]() |
ÓLYMPÍULEIKARNIR 2012 - Bein útsending verður á RÚV frá Ólympiuleikunum sem fram fara í London næsta sumar. | ||





















