Afsláttarkjör RÚV ohf.

2009


Sjónvarpsauglýsingar              Útvarpsauglýsingar
 

Brúttó viðskipti á ári

Afsláttur

      

Brúttó  viðskipti á ári

Afsláttur

1.000.000 kr.

5%

 

500.000 kr.

5%

2.500.000 kr.

9%

 

1.250.000 kr.

9%

5.000.000 kr.

13%

 

2.500.000 kr.

13%

7.500.000 kr.

17%

 

3.750.000 kr.

17%

10.000.000 kr.

20%

 

5.000.000 kr.

20%

12.500.000 kr.

23%

 

6.250.000 kr.

23%

15.000.000 kr.

25%

 

7.500.000 kr.

25%

17.500.000 kr.

28%

 

8.750.000 kr.

28%

20.000.000 kr.

30%

 

10.000.000 kr.

30%

 

 

 

 


 
  • Föst afsláttarkjör eru uppfærð í byrjun árs og um mitt ár og grundvallast á viðskiptum við RÚV síðustu tólf mánuðina þar á undan. Einnig er litið til viðskiptasögu síðustu þriggja ára ef tímabundnar sveiflur verða á viðskiptum þannig að slíkar sveiflur raski ekki afsláttarkjörum um of.
  • Afsláttartaflan sýnir þann ramma sem unnið er útfrá við ákvörðun á föstum afsláttum. Hún er þó ekki tæmandi, heimilt er að framreikna hana með sömu hlutfallsreikningum ef brúttóviðskipti eru meiri.
  • Til viðbótar föstum afsláttum geta bæst við aðrir afslættir, t.d. í formi styrkingar, ef birt er á mjög skömmum tíma, ef stjórna má staðsetningum (svokallað „Run by station“) os.frv. Upplýsingar um slíkar útfærslur eru aðgengileg hjá auglýsingadeild og gilda jafnt fyrir alla viðskiptavini.
  • Afsláttur sem tengist tímabundnum tilboðum, sem getur verið hærri en skv. afsláttartöflum, bætist ekki við þessi afsláttarkjör nema það komi sérstaklega fram.
  • Tilboðskjör eru aðgengileg öllum viðskiptamönnum sbr. 6. gr. gjaldskrár RÚV ohf.
  • Með því að gera samning um þjónustulaun við RÚV ohf. ganga auglýsingastofur inní viðskipta- og þjónusturamma, m.a. um ofangreindar útfærslur á kjörum.
  • Með rafrænum mælingum er þróunin sú að viðskipti færast yfir í punkta (GRP/TRP) í stað þess að miðað sé við fjölda sek. Auglýsingadeild Rúv er að feta sig áfram með punktasölu og stendur viðskiptavinum til boða að gera samninga um slíkt. Meginstefið í slíkum samningum er að þeir séu í samræmi við önnur kjör og fari sem næst því að endurspegla meðal sek. verð. Innan tíðar munu slíkir samningar verða alsráðandi á markaðnum og er þá viðbúið að föst afsláttarkjör breytist og leggist jafnvel alveg af.
  • Til að auðvelda nýjum fyrirtækjum aðgang að markaði er heimilt að semja við ný fyrirtæki um framvirkan afslátt miðað við áætluð viðskipti.
    Ef viðskipti innan eins mánaðar eru hærri en 1 milljón án vsk. er heimilt að margfalda upphæðina með 11 til að finna afsláttarþrep fyrir viðskiptin skv. afslátartöflu. Gildir þá það afsláttarþrep þann mánuð sé þaðhærra en almenn afsláttarkjör auglýsandans segja til um.
  • Afsláttarkjör þessi gilda ekki um stjórnmálaflokka og góðgerðarsamtök. Öllum stjórnmálasamtökum bjóðast sömu afsláttarkjör óháð umfangi viðskipta. Góðgerðarsamtök geta samið sérstaklega um afslætti, t.d. í söfnunum.

 

Allar tölur eru án vsk.