Kostanir á RÚV


RÚV ohf. býður kostun á ýmsum þáttum, viðburðum og dagskrárliðum í samræmi við lög og reglugerðir. Almenna reglan er sú að þeir þættir eru til sölu sem heimilt er að kosta. Kostunar er aflað á ýmsum stigum áður en dagskrárliður er sýndur.


Kostun á erlendum þáttaröðum og viðburðum er alla jafna kynnt þegar viðkomandi þættir hafa verið dagskrársettir. Í tilviki stórra viðburða, t.d. stórmóta í íþróttum, getur kostunar verið leitað fljótlega eftir að sýningarréttur hefur verið tryggður. Innlendir þættir og viðburðir eru oft kynntir kostendum á framleiðslustigi, jafnvel áður en ákvörðun um framleiðslu er tekin.

Ef sýningar eru hafnar á ókostuðum þáttum lýkur gjarnan sölukynningu á þeim. Viðskiptavinir geta þó óskað eftir því að fá að kosta viðkomandi þætti og tekur auglýsingadeild til athugunar hvort það er framkvæmanlegt. RÚV ohf. leitast við að birta á vef sínum og kynna auglýsendum með tölvuskeytum og öðrum boðleiðum hvaða kostanir standa til boða hverju sinni. Auglýsingadeild Rúv ohf. veitir einnig upplýsingar um hvaða kostanir standa til boða lengra fram í tímann.


Við verðlagningu kostunar skal RÚV ohf. taka mið af birtingartíma, líklegu áhorfi/hlustun og öðrum þeim atriðum sem sérstaka þýðingu geta haft, sbr. 1. mgr. 7. gr. gjaldskár félagsins. Við verðlagningu kostana er þó litið til fleiri atriða en við verðlagningu almennra auglýsinga.


Kostanir sem til sölu eru hverju sinni eru kynntar með viðmiðunarverði. Í einstökum tilfellum er þess óskað að kostendur sendi inn óskir um að vera kynnt viðkomandi kostun fyrir tiltekna lokadagsetningu.


RÚV ohf. vekur athygli kostenda og auglýsenda á því að í ákveðnum tilfellum fylgja kostanir með þegar efni er keypt og hefur auglýsingadeild RÚV ohf. þá ekkert um þær kostanir að segja. Slíkt er t.d. afar algengt með íþróttefni.


Dæmi um kostanir og almenn verðviðmiðun:


Sjónvarpið:

Erlendar þættir:      80.000 kr. - 150.000 kr. á hvern þátt.
Innlendir þættir:
100.000 kr. - 1.000.000 kr. á hvern þátt.
Stórmót:
500.000 kr. - 5.000.000 kr. á hvert mót.
Einstakir viðburðir:
100.000 kr. - 2.500.000 kr. á hvern viðburð.





Útvarpið:

Í útvarpi eru kostanir verðlagðar miðað við verð á mánuði. Verð er 100.000 kr. til 700.000 kr. á mánuði fyrir hvern þátt og fer það t.d. eftir því um hversu marga þætti á viku er að ræða og á hvaða tíma dags.