9.5.2012

Meistaradeildin á RÚV

RÚV hefur tryggt sér sýningarrétt á undanúrslitum og úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta. Leikið verður í Köln 26. og 27. maí og verða allir leikirnir fjórir sýndir á RÚV. Flestir af bestu landsliðsmönnum Íslands í handbolta verða í eldlínunni í Köln þessa helgi og von á mikilli veislu.




3.5.2012

Úrslit Útsvars vinsælast

Ný áhorfskönnun er komin inn á vefin, en í síðustu viku var bein útsending frá úrslitaþætti Útsvars vinsælasti dagskrárliðurinn.  Alla leið og Landinn komu þar skammt á eftir.  Hægt er að nálgast upplýsingar um áhorf og hlustun með því að skrá sig inn á þennan vef.



27.3.2012

Skilatímar auglýsinga

Þar sem útsending RÚV hefst klukkan 8:00 árdegis dagana 2., 3. og 4. apríl, þurfa pantanir leikinna sjónvarpsauglýsinga að berast okkur sem hér segir:

Auglýsingar og pantanir sem birtast eiga mánudaginn 2. apríl fyrir klukkan 15:00, fös. 30. mars. 
Auglýsingar og pantanir sem birtast eiga þriðjudaginn 3. apríl fyrir klukkan 15:00, mán. 2. apríl.
Auglýsingar og pantanir sem birtast eiga miðvikudaginn 4. apríl fyrir klukkan 15:00, þri. 3. apríll.

Jafnframt minnum við á að auglýsingar og pantanir fyrir dagana 5. til og með 10. apríl þurfa að berast okkar í allra síðasta lagi fyrir hádegi miðvikudaginn 4. apríl.



22.3.2012

Vinsælir fimmtudagar

Andraland er vinsælasti dagskrárliður landsins.  Þátturinn fékk 44% meðaláhorf í síðustu viku, en í öðru sæti var Landinn og númer þrjú á vinsældalistanum var heimildaþáttaröðin Frozen Planet, sem sýnd er á mánudagskvöldum á RÚV.
Fimmtudagskvöldið fékk gríðarlegt áhorf að þessu sinni.  Desperate Housewives, Criminal Minds, Andraland og The Good Cook eru meðal dagskrárliða á fimmtudagskvöldum á RÚV.
Hægt er að nálgast ítarlegar upplýsingar um áhorf og hlustun með því að skrá sig inn á vefinn.



6.3.2012

Andraland

Andri Freyr Viðarsson flandrar um Reykjavík. Hann kemur víða við, skoðar áhugaverða staði, lendir í ýmsu klandri og spjallar við skemmtilegt fólk. Þættirnir verða á fimmtudagskvöldum kl. 20.40. Þetta er sjö þátta syrpa með Andra og er fyrsti þátturinn á dagskrá RÚV 8. mars.



16.2.2012

75% áhorf á Söngvakeppnina

Mjög mikið áhorf mældist á úrslitakvöld Söngvakeppni Sjónvarpsins laugardaginn 11. febrúar.  Alls voru um 75% þjóðarinnar sem horfðu eitthvað á útsendinguna, en 50% meðaláhorf mældist á dagskrárliðinn.  Aðrir vinsælir dagskrárliðir í síðustu viku voru Útsvar, Landinn og heimildaþáttaröðin Mannslíkaminn sem sýndur er á mánudagskvöldum.  Nánari upplýsingar um áhorf og hlustun er hægt að fá með því að skrá sig inn á vefinn.