Reglur um auglýsingar og kostun dagskrárefnis í Ríkisútvarpinu


1. gr.

Almenn ákvæði

Auglýsandi ber fulla ábyrgð á efni auglýsingar. Auglýsingar mega ekki brjóta í bága við íslensk lög og reglur.

2. gr.

Skil á auglýsingum

Auglýsandi eða umboðsaðili hans skilar auglýsingu mynd- og/eða hljóðritaðri og tilbúinni til flutnings. RÚV setur nánari reglur um skilafrest og tæknileg atriði. Falli birting auglýsingar niður, eða komi fram galli í útsendingu sem má rekja til mistaka eða tæknilegra örðugleika hjá RÚV, skal það í samráði við auglýsandann bætt með:

a) aukabirtingu án endurgjalds

b) niðurfellingu gjalds í þeim tilvikum sem endurbirtingu verður ekki við komið


3. gr.

Skilyrði fyrir birtingu auglýsingar

Auglýsingar sem ætlaðar eru til flutnings í hljóðvarpi eða sjónvarpi skulu fullnægja eftirtöldum skilyrðum:

  1. Auglýsingar skulu ekki brjóta í bága við almennt velsæmi.
  2. Auglýsingar skulu vera á lýtalausu íslensku máli. Heimilt er þó að erlendir söngtextar séu hluti auglýsingar.
  3. Þess skal gætt að auglýsingar séu látlaust orðaðar, lausar við skrum og hæpnar fullyrðingar, en segi það eitt sem er satt og rétt.
  4. Auglýsing skal ekki fela í sér ádeilu eða hlutdræga umsögn um einstaka menn, stofnanir, félög, félagasamtök, stefnur í almennum málum eða stjórnmálaflokk.
  5. Í auglýsingum má ekki felast ósanngjarn samanburður við aðra vöru eða þjónustu.
  6. Auglýsingar skulu ekki bregða upp eða lýsa á neinn hátt hættulegu atferli eða atvikum þar sem öryggis er ekki gætt, nema sérstök ástæða sé til í menntunarlegum eða félagslegum tilgangi, svo sem í auglýsingum vegna slysavarna eða tóbaksvarna. Varúð skal sérstaklega viðhöfð í auglýsingum sem höfða til barna eða unglinga eða sýna slíka aldursflokka.
  7. Auglýsing má ekki vera til þess fallin að vekja ótta eða hvetja til ofbeldis.
  8. Auglýsingar skulu miðast við að börn sjái þær og heyri og mega þær á engan hátt misbjóða þeim.

Auglýsingar skulu að öðru leyti vera í samræmi við gildandi lög og reglur hverju sinni, þ.m.t. lög nr. 57/2005 um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins, með síðari breytingum.

4. gr.

Börn og auglýsingar

RÚV birtir ekki auglýsingar í tengslum við barnaefni sem sýnt er þegar líklegt er að börn horfi ein á sjónvarp fyrir kl. 18.00 á daginn. Skulu tímamörkin endurskoðuð með tilliti til breyttrar dagskráruppsetningar og niðurstöður rannsókna og mælinga. Frá kl. 18.00 og til kl. 19.00 er venjulega sýnt blandað efni sem getur höfðað til barna. RÚV áskilur sér rétt til að beina auglýsingum frá ákveðnum þáttum ef líklegt er talið að það höfði til mjög ungra barna eða líklegt þykir að börn horfi ein á slíka þætti.

5. gr.

Auglýsingar stjórnmálaflokka

Magn auglýsinga frá stjórnmálaflokkum og öðrum þeim sem að framboði standa má ekki verða til þess að hindra birtingu auglýsinga annarra framboðsaðila. RÚV áskilur sér rétt til niðurröðunar þeirra og að panta þurfi þær með ákveðnum fyrirvara. Óheimilt er að veita einum framboðsaðila afnot af heilum auglýsingatíma. Um ágreiningsatriði skal farið að ákvæðum 8. gr.

Á kjördag mega auglýsingar frá samtökum og mögulega einstaklingum, sem að framboði standa, aðeins fjalla um skrifstofur, heiti skrifstofa, stað og símanúmer og leiðbeiningar til kjósenda um kosningu og kjörstaði.

6. gr.

Kostun

Kostun dagskrárefnis telst hvers konar framlag lögaðila eða einstaklings til framleiðslu og/eða sýningar dagskrárliða í útvarpi eða sjónvarpi, með það fyrir augum að vekja athygli á nafni hans, vörumerki eða ímynd. RÚV er heimilt að láta kosta dagskrárefni innan ramma gildandi laga og almennrar gjaldskrár félagsins fyrir auglýsingabirtingar, kostun og aðra skylda tekjustofna, og í samræmi við þær reglur sem í gildi eru hverju sinni innan fyrirtækisins.


7. gr.

Kostunarsamningar

Allir kostunarsamningar skulu vera skriflegir. Markaðsstjóri eða auglýsingastjóri RÚV annast gerð þeirra og hefur eftirlit með framkvæmd þeirra. Réttindi og skyldur skv. kostunarsamningum má ekki framselja. Um kostunarsamninga að öðru leyti gilda ákvæði almennrar gjaldskrár félagsins fyrir auglýsingabirtingar, kostun og aðra skylda tekjustofna.


8. gr.

Túlkun

Markaðsstjóri RÚV sker úr um hvort auglýsingar uppfylla þau skilyrði sem gerðar eru til þeirra í reglum þessum. RÚV áskilur sér rétt til að hafna auglýsingu sem það telur efnislega eða tæknilega ófullnægjandi. Verði ágreiningur vegna túlkunar á þessum reglum skal þeim ágreiningi vísað til útvarpsstjóra.

9. gr.

Gildistaka

Reglur þessar voru samþykktar á stjórnarfundi RÚV ohf. þann 24. mars 2009 og taka þær þegar gildi.